Tilviljanakennt orð
May 30, 2022

Tilviljanakennt orð

Það er talað um að mannsheilinn geti ekki meðvitað einbeitt sér að tveimur ótengdum þáttum samtímis án þess að búa til tengingu á milli þeirra.

Það getur ýtt undir sköpun að tengja vandamálið sem þú vilt leysa við tilviljanakennt orð.

Veldu þér tölu á frá 1 og upp í 20 áður en þú lest áfram því í athugasemd undir þessari færslu eru 20 mismunandi orð sem þú getur nýtt þér til að ýta undir skapandi hugsun til að leysa vandamálið sem þú ert að einbeita þér að.

Þegar þú hefur skilgreint vel það vandamál sem þú vilt leysa og ert komin/nn með tilviljanakennt orð þá getur verið gott að teikna mynd af vandamálinu og orðinu sem þú fékkst og svo er að sjá hvernig þetta getur tengst.

Hér er dæmi um hvernig mögulegt er að nýta þessa aðferð

Vandamálið: Hvernig er hægt að auka sölu?

Tilviljanakennt orð: Flaska

Dæmi um tengingar:

  • Flöskur er hægt að kaupa stakar, 6 í pakka eða í kössum. → Er hægt að selja fleiri vörur saman?
  • Það er skilagjald á flöskum. → Er hægt að gefa viðskiptavinum sem koma aftur afslátt?
  • Það er hægt að nota flöskur sem blómavasa og kertastjaka. → Er hægt að nota vöruna í eitthvað fleira og ná þannig til annars markhóps?
  • Flöskur koma í mismunandi stærðum. → Væri hægt að selja mismunandi stærðir af vörunni?

Æfðu þig í að skapa með því að skilgreina vandamál og velja tölu frá 1 og upp í 20 og sjáðu hér fyrir neðan hvaða tilviljanakennda orð þú færð. Gangi þér vel :)

Fleiri tilviljanakennd orð

Hvaða númer valdir þú? 

  1. Fiðrildi
  2. Vasi
  3. Rigning
  4. Maur
  5. Flugeldar
  6. Skegg
  7. Fáni
  8. Stækkunargler
  9. Flugvöllur
  10. Ferilskrá
  11. Rennilás
  12. Fjarstýring
  13. Píanó
  14. Sundlaug
  15. Sláttuvél
  16. Api
  17. Samningur
  18. Klukka
  19. Gufa
  20. Banki

Spjallaðu við okkur um sköpunargleði

Hafðu samband