Hug­mynda­ríka eða hug­mynda­snauða Ís­land?
March 9, 2024

Hug­mynda­ríka eða hug­mynda­snauða Ís­land?

Ég sat skemmtilegt iðnþing Samtaka iðnaðarins sem bar yfirskriftina Hugmyndalandið – Dýrmætasta auðlind framtíðar.

Á því var mikið rætt að það eru hugmyndirnar sem breyta heiminum og fleyta okkur inn í framtíðina, góðar hugmyndir eru forsenda allra góðra verka og þetta snýst ekki um hvar við erum heldur hvert við getum farið.

Guðmundur, stofnandi Kerecis, kom svo og bætti við að þetta snýst ekki eingöngu um hugmyndir heldur það að vera með djúpstæða þekkingu til þess að geta leyst vandamál.

Það sem mér fannst vanta var að tala um hvernig við getum ýtt undir að mannauður Íslands sé hugmyndaríkur og kunni að finna raunveruleg vandamál sem fólk er að leita að lausnum fyrir.

Áslaug Arna, ráðherra, talaði um að hraðinn er sífellt að aukast og tók dæmi um að þekking mannkynsins er núna að tvöfaldast á hverjum degi þegar þekking heimsins tvöfaldaðist á hverri öld fyrir árið 1900.

Rannsóknir hafa bent á að þessi aukni hraði geti dregið úr hugmyndaauðgi fólks og margir kannast við að fá flestar hugmyndir sínar í sturtu, úti að hlaupa eða í fjallgöngum því það er einungis þá sem við erum nógu lengi frá skjánum til þess að hafa rýmið til þess að hugsa.

Það er talað um að við séum að upplifa krísu skapandi hugsunar. Í yfir 50 ár hefur gögnum um skapandi hugsun fólks í Bandaríkjunum verið safnað með Torrence prófi. Skapandi hugsun fólks óx með hverju árinu sem hún var mæld, en árið 1990 varð breyting á og einkunn fólks á prófinu byrjaði að hríðfalla. Vísindafólk telur ástæðuna vera þennan aukna hraða.

Það er miður, því að skapandi hugsun er talin vera sú hæfni á vinnumarkaði sem er ein sú mikilvægasta í dag og mun nauðsyn hennar aukast hvað hraðast á næstu árum samkvæmt Alþjóða Efnahagsráði.

Rannsóknir benda einnig á að fyrirtæki sem leggja áherslu á skapandi hugsun eru með ánægðari viðskiptavini, ánægðara og heilbrigðara starfsfólk og vaxa hraðar.

Það er því nokkuð ljóst að virðið í því að leggja áherslu á skapandi hugsun er mikið og leysa þarf það vandamál að skapa umhverfi sem styður við og eflir skapandi hugsun. Við getum ekki notað lausnir gærdagsins til þess að leysa vandamál dagsins í dag, því eins og Áslaug Arna talaði um þá er kominn veldisvöxtur í breytingar.

Sem betur fer er hægt að þjálfa skapandi og lausnamiðaða hugsun og skapa umhverfi á vinnustöðum sem styður við hugmyndir í stað þess að draga úr þeim eins og því miður rannsóknir benda á að gerist frekar.

Leggja ætti meiri áherslu á að kenna skapandi og lausnamiðaða hugsun í háskólum landsins í öllum deildum, ásamt því skapa lausnir til þess að auka rýmið fyrir skapandi hugsun í grunnskólum landsins.

Það er núna sem við þurfum að leggja enn meiri áherslu á að þjálfa og efla skapandi hugsun fólks því það getur verið okkar helsta samkeppnisforskot á heimsvísu og þannig getum við raunverulega orðið hugmyndalandið Ísland.

Líkt og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, sagði í lokin á iðnþinginu að þá blómstrar íslenskur jarðvegur ekki af sjálfum sér, við þurfum að skapa rétta jarðveginn.

Spjallaðu við okkur um sköpunargleði

Hafðu samband